Aðgengilegasti vefurinn

Magnús Þór Bjarnason maggi@hugsmidjan.is

Á síðasta ári fengum við það verkefni að aðstoða Fjársýslu ríkisins við uppbyggingu, hönnun og forritun á nýjum vef stofnunarinnar. Það var mjög áþreifanlegt frá fyrsta fundi að fólkið bak við vefinn setti markið hátt.

Skjáskot af vef Fjársýslunnar

Metnaðurinn og vinnan af hálfu stofnunarinnar var til mikillar fyrirmyndar. Það er ótrúlega gaman að taka þátt í svona samstarfi þar sem allir leggjast á eitt við að gera eins vel og hægt er.

Niðurstaðan er ekki einungis tæknilega vel búinn snjallvefur, heldur er uppbygging einföld og efnið skýrt. Þess vegna nær fjs.is að miðla upplýsingum vel til þeirra sem þurfa að nýta sér þjónustu stofnunarinnar.

Vefurinn fékk verðlaun sem aðgengilegasti vefurinn á Íslensku vefverðlaununum fyrir árið 2013. Við hjá Hugsmiðjunni þökkum samstarfið og óskum Fjársýslu ríkisins til hamingju með verðlaunin og glæsilegan vef.

Nýlegar færslur